tag:blogger.com,1999:blog-49018470239514461562024-02-19T06:11:51.099+00:00Ragnar Geir BrynjólfssonRagnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.comBlogger107125tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-75894961129327963322012-05-01T14:42:00.001+00:002012-05-01T14:42:12.565+00:00Sumartíð

Sumartíð - vögguvísa að vori.

(Íslenskur söngtexti við lagið Summertime eftir George Gershwin.)

Sumartíð, já og sumarblíða.

Langur vetur nú að baki er.

Lóusöngur, lýkur öllum kvíða.

Létt grát þínum angi, lífið mun hjúfra þér.

Einhvern morgun, muntu vakna og vitja,

vængja þinna, hefja söngsins klið.

En fram að þeim tíma, mun ég hjá þér sitja,

og mamma og pabbi standa þér við hlið.

Höfundur texta: Ragnar Geir Brynjólfsson

Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-63278291891096585862009-09-21T19:47:00.011+00:002009-09-23T08:36:32.169+00:00Íslenskur texti við þýska þjóðlagið Krambambuli sem nota má sem afmælissöngSumir lesenda kannast kannski við þýska stúdentalagið Krambambuli. Sjá hér í flutningi Erich Kunz: http://www.youtube.com/watch?v=l32n5yncfmM&feature=related

Lag þetta er þýskt þjóðlag en þýski textinn er eftir þýska skáldið Christoph Friedrich Wedekind (1709-1777) en hann notaði dulnefnið Crescentius Koromandel. Sá texti er um vín bruggað úr einiviði en þennan íslenska texta sem hér kemur á eftir má sem best nota sem afmælissöng og hnika til orðum svo löng eða stutt nöfn komist fyrir í textanum.

Afmælissöngur.

Það tómlegt er ekki í tímans glasi
og teljast þar árin í reynslusjóð.
Við göngum á fund með gleðifasi
og gjalla látum söngvaljóð.

Viðlag: (x2)
Já höfum nú í hámæli að X (hann/hún) á afmæli
já (hann/hún) á afmæli, já afmæli.

Já tíminn hann upp á okkur lítur,
og andvari hans nemur staðar hljótt.
En augnabliksgleðin hún ekki þrýtur,
og orðin þau hljóma í söngnum ótt.

Viðlag: (x2)
Já höfum nú í hámæli að X (hann/hún) á afmæli
já (hann/hún) á afmæli, já afmæli.

Höf. texta Ragnar Geir Brynjólfsson.Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-55065304749863250942009-08-23T13:50:00.001+00:002009-08-23T13:52:04.423+00:00Við ReynisdrangaEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Kemur aldan klettinn við
kalt er brim í faldinn.
Þú sækir afla á sjávarmið
sértu illa haldinn.Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-66971870572704695352009-08-02T21:47:00.002+00:002009-08-02T21:48:20.657+00:00Nýr íslenskur texti við „Hallelujah“ eftir Leonard CohenHér á eftir kemur nýr íslenskur texti eftir færsluhöfund við lagið Hallelujah eftir kanadíska söngvaskáldið Leonard Cohen. Lagið er fallegt, tilfinningaþrungið en þó einfalt eins og sum önnur laga Cohen en enski frumtextinn hentar ekki til kirkjusöngs. Þessi eftirfarandi texti byggir því að litlu leyti á upprunalegum texta söngvaskáldsins en er ætlaður til þess að nota þegar lagið er flutt á trúarlegum samkomum.

Við textagerðina var stuðst við Fyrri Samúelsbók, kafla 16, vers 23 og Davíðssálma 137, 130 og 146-149 í þessari röð.

Hallelúja

Er Davið sló sinn helga hljóm
á hörpuna og hóf upp róm
þá bráð' af Sál og 'ann sagði ert það þú já.
Úr ferund í fimmund lagið fer
til hæða sálin lyftir sér
og snortinn mælir höldur - hallelúja.

Viðlag:
Hallelúja - hallelúja
Hallelúja - hallelúja.

Í Babýlon við vötnin ströng,
þeir heimtuð' af oss gleðisöng
og allt við höfðum misst þar nema trúna.
Frá gráti yfir í gleðitár
það græðir hjartans dýpstu sár
er heyrist beðið hljóðlátt - hallelúja.

Viðlag.

Úr djúpinu ég ákalla þig,
ó Drottinn viltu heyra mig
og von mín ávallt fær mig til að segja.
Hið eina sanna lausnar mál
er morgunljómi í minni sál,
finn miskunn þér í hjarta - hallelúja.

Viðlag.

Ó syngið Drottni nýjan söng
er þíðir hrímuð hjarta göng
já látum okkur hefja róminn núna.
Hann rekur réttar kúgaðra
og mettar munna hungraðra
með einu himna orði - hallelúja.

Viðlag.

Höfundur texta: Ragnar Geir Brynjólfsson. Gítargrip við lagið má finna á gitargrip.is.Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-9327861338470850882009-07-19T00:13:00.007+00:002009-07-19T00:55:43.039+00:00Memphis Tennessee lagið - íslenskur textiÞað hefur líklega verið sumarið 1982 sem við Davíð í Skógsnesi og Eiríkur á Arnarhóli komum saman í Félagslundi á kvöldin til að spila og syngja saman okkur til skemmtunar. Davíð spilaði á orgel, Eiríkur á gítar, ég á bassa og Bói í Önundarholti kom í eitt eða tvö skipti og trommaði með okkur. Einnig Eric frændi minn. Eyvi á Vestri-Hellum kom líka einu sinni a.m.k. og spilaði á harmonikku. Félagslundur var og er samkomuhús í Gaulverjabæjarhreppi, núna Flóahreppi.

Þetta var okkar eigin framtak en ekki félagasamtaka en við nutum samt velvildar þeirra sem sáu um húsið. Við lofuðum að þrífa eftir okkur og ganga vel um og það tókst ágætlega að því er ég best veit. Við veltum fyrir okkur að stofna hljómsveit, komum þó aldrei fram en kölluðum þennan félagsskap okkur til skemmtunar „Baggabandið. “

Við spiluðum mest uppáhalds rokkslagara. Rauluðum lög á borð við „Have you ever seen the rain“ með Creedence Clearwater Revival, „Under my Thumb“ með Rolling Stones, vinsæl lög eftir Bubba og svo lagið Memphis Tennessee í eftirlíkingu af útgáfu Bítlanna.

Í erlendu lögunum fannst mér betra að geta sungið þau með íslenskum texta og því fór ég að reyna að hnoða saman textum. Ég reyndi aðeins við „Have you ever seen the rain“ en var ekki nógu ánægður með útkomuna. Man þó að ég vísaði í liðin rosasumur á Suðurlandi, svo sem '55 og '56, '75 og '76. Ég bjó þó til texta við Memphis lagið sem ég var það ánægður með að ég man hann nokkurn veginn ennþá. Íslenskunin fer hér á eftir.

Upprunaleg mynd textans mun hafa verið gerð af Chuck Berry. Margir aðrir hafa flutt það en frægastir eru þó líklega Elvis Presley og Bítlarnir. Sjá nánari uppl. um lagið og enska textann hér.

Hér kemur svo textinn frá 1982:

Landssími náðu í Memphis Tennessee
é'ra reyna' finna stelpu það er áríðandi því
hún skild' ekk' eftir númer en nafnið hef ég þó
ég veit líka nokkurn veginn alveg hvar hún bjó.

Hjálpaðu mér landssími að finna'na Marie
stelpuna sem hringdi frá Memphis Tennesse
hún bjó fyrir sunnan, ekki langt þar frá
um það bil mílu frá Missisippi á.

Hjálpaðu mér landssími að bæta því við
ég sakni hennar mikið, það þoli enga bið
Mamm'ennar fór frá mér og tók'ana Marie
því reyni ég að finna'na í Memphis Tennessee.

Síðast er ég sá Marie þá veifaði hún mér
og þurrkaði tárin af kinnunum á sér
Marie er bara sex ára, landssími því
bið ég þig að finna'na í Memphis Tennesse.Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-38287068485526663802009-05-23T23:02:00.000+00:002009-05-23T23:02:00.343+00:00VeturEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Skafrenningur
Fiðlubogi
stormsins

Það hvín í
ýlustráinu
á baðstofuþakinu

Veltandi skafrenningur
þenur bogastrenginn
á ýlustráinu

Brothljóð slitinn
bogastrengur
Vorið kom í nótt

(2003)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-2929626133103654292009-05-22T23:05:00.000+00:002009-05-22T23:05:00.764+00:00Fegurð FlóansEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum

Í blautri mýrinni
hefur blómflóran
drukkið í sig
daggardropa næturinnar

Fuglasaungur
Andardráttur jarðarinnar
í heitri lognmollu
morgunsins

Síðdegis útræna af hafinu
Léttar bylgjur loftsins
vagga puntstráum

Hillingar til hafsins
Óráðin vindský
á austur og vesturfjöllum

Myndsalur fjallahringsins
Fegurð Flóans
fullkomin

(Desember 2002)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-31242039547332286012009-05-21T20:02:00.000+00:002009-05-21T20:02:00.231+00:00FrostnóttEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Sólin kemur upp
fyrir norðan Heklu
og þýðir héluna
Glitrandi regnbogar
dansa á fallandi laufi
Morgunn

(2003)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-65408699347387934302009-05-20T20:53:00.000+00:002009-05-20T20:53:00.174+00:00FrostrósEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Ég ligg lítill drengur
í gömlu baðstofunni
horfi á kvistina
í súðinni taka á sig
margskonar myndir

Fjöll tröll og álfa
ævintýraheimur
á baðstofusúðinni

Laufblað á glugga
Ég rís upp til
að taka það af
Finn aðeins kalt gler

Rétt seinna
Fullkomin frostrós
með puttafar
á einföldu gleri

Tvöfalt gler
engin frostrós

(Desember 2002)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-29564598196696727742009-05-19T20:56:00.000+00:002009-05-19T20:56:00.439+00:00MyndEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Mynd mín
liggur marflöt
á botni tjarnarinnar

Hreyfist sem tíbrá
þegar golan
strýkur vatnsflötinn

Hverfur þegar ég
geng burt

Ljóðið birtist með minnigargrein um Jóhann Guðmundsson í Morgunblaðinu 27. febrúar 1999. Það misritaðist þannig að skrifað stóð: „þegar golan strikar vatnsflötinn“. Þetta leiðréttist hér með.Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-18022833077287023422009-05-18T20:05:00.000+00:002009-05-18T20:05:01.323+00:00GrænlandEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Grænland
því grætur þú
tár þín eru
stór hvít
og frosin
þau falla
í djúp hafsins
og eru þín
landvörn

Grænland
þú verður
stöðugt
að gráta

(1993)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-39887270013293264072009-05-17T19:08:00.000+00:002009-05-17T19:08:00.486+00:00DagurinnEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Fagra nótt
eg var hjá þér
og stjörnum þínum

Bláa haf
eg var með þér
og bárum þínum

þú fagra tré
eg faldi mig
í laufi þínu
uns dagur rann

(1995)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-26591474027660731962009-05-16T19:18:00.000+00:002009-05-16T19:18:00.633+00:00BlekkingEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Enn í kvöld
drekkum við
af þessum
barmafulla bikar
og teigum
þína skál
Blekking

(2001)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-36793559668753620362009-05-15T19:16:00.000+00:002009-05-15T19:16:00.129+00:00FerðasagaEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Minn fyrsti bar hann var á bökkum Rín
Á bökkum Dónár drakk ég eðalvín
Á bökkum Rauðár mest mig hefur þyrst
Á bökkum Mósel hef ég vínið kysst

Við ána Inn þar leit ég barinn minn
Líka sá ég bar við Pódalinn
Við ána Tíber teygað ölið var
Við Ölfusána aldrei sat á bar

(2002)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-41397535210600899042009-05-14T19:21:00.000+00:002009-05-14T19:21:00.395+00:00Lönd minningannaEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Ég hlusta á
þig gánga
léttum fótum
um lönd
minninganna
í draumi
Hvar varst þú

(2003)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-24923443905528380932009-05-13T21:29:00.000+00:002009-05-13T21:29:00.914+00:00Bylgjandi grasEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Áður var
bylgjandi gras
fljúgandi fuglar
líf við fætur mína
Nú glymur
stafur minn
á malbikinu
Hörðu köldu
malbikinu
þar sem haustlaufin
frjósa

(2004)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-4219881286324369342009-05-12T19:25:00.000+00:002009-05-12T19:25:00.737+00:00Klukkurnar hringjaEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Ég hlusta á
þig gánga
léttum fótum
um lönd
minninganna
í draumi
Hvar varst þú

(2003)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-30872689927547595682009-05-11T19:27:00.000+00:002009-05-11T19:27:00.539+00:00Haust (2)Eftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Fuglarnir fljúga
til hafsins
Enn er smalað
af heiðum
Rauð rennur áin
til sjávar
Haustið er komið
til landsins

Eg kem hér í dag
til að kveðja
eg kem kannski
aftur með vorið

(2004)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-14102103373329099632009-05-10T21:00:00.000+00:002009-05-10T21:00:01.543+00:00Gamlir leikstaðirEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Sandbergið
Hulduhóll
Kúalá
Mosasteinn

Sem var barinn
með hömrum
lítilla barna
þar til hann skalf

Lindin í
brekkunni
sem enn
rennur
um túnið

Spjallasól
grafin
í grónu
túni

Nú sjást
ekki lengur
kóngulóarvefir
í hrossapunti
eða fiðrildi
á ágústkvöldi

Mýrin sundurskorin
lífríki dautt

Óðinshani kría
keldusvín farið
fúamýrin tún.

(2002.)

Aths. Spjallasól er brekka í landi Kolsholtshellis í Flóa. Hún er í brekkunni við veginn heim að bænum. Þar var gott skjól og háar þúfur þar sem börnin á bænum léku sér.Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-50978088108011893492009-05-09T20:05:00.000+00:002009-05-09T20:05:00.502+00:00Draumur við lækinnEftir Brynjólf Guðmundson frá Galtastöðum í Flóa

Hér ertu litli lækur
sem rennur í brekkunni
niður að ánni

Hestar mínir
svala þorsta sínum
ég halla mér að þúfu

Þú stækkar og verður á
sem rennur í gljúfrum
með háa fossa
straumköst regnboga

Grænir hyljir með
grónum bökkum
Flugeldar draumsins
í ljúfum svefni
Hestar mínir
toga í tauminn

Nú ertu bara
lítill lækur
sem rennur
í brekkunni
niður að ánni.

(2004)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-42878733874046401852009-05-08T19:16:00.001+00:002009-05-08T19:16:01.033+00:00Við GardavatniðEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Hér eru fjöllin mjög há
og myrkrið svo svart
En Venus skín skært
í Rómverskri nótt.

Minn hugur flaug hátt
yfir fjöll yfir ský.
Þar sem norðurljós skær
lýsa upp íslenska nótt.

(2004)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-54395846184178625912009-05-07T19:13:00.000+00:002009-05-07T19:13:00.666+00:00VindharpanEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Vindurinn
leikur á hörpu sína
við ósa árinnar

Blágrænn sjórinn
og áin dansa
á sandinum

Stundum
villtan dans
sporlaust
á svörtum sandinum.

(2002)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-68675267709548612472009-05-06T19:17:00.000+00:002009-05-06T19:17:00.827+00:00AlpafjöllinEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Tignir tindar
snæviþaktir
ró þar sem
Alparós fellir
blöð sín
í klettaklifi

Golan strýkur
rauðbirknar
marglitar hlíðar
og haustlitað
hár ferðamanns
í fjallaskarðinu.

(2004)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-16638997106417129412009-05-05T19:58:00.000+00:002009-05-05T19:58:00.809+00:00Það er draumur þinn jörðEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Þú frostharða nótt
þín héluðu strá
drjúpa höfði svo hljótt
yfir fannhvítan svörð

þín dúnmjúka mjöll
mun þiðna í vor
þá vaxa ný strá
það er draumur þinn jörð

Eftir frostharða nótt
eg horfi á þig strá
mig dreymdi svo rótt
minn draumur var þrá

Þetta ljóð ætla ég að tileinka afa mínum Brynjólfi og ömmu minni Guðríði.Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-4901847023951446156.post-52307980231370590742009-05-04T17:18:00.000+00:002009-05-04T17:18:00.693+00:00HeimsóknEftir Brynjólf Guðmundsson frá Galtastöðum í Flóa

Afi komdu sestu hjá mér.
Hér er bókin hvað er að frétta?
Hér er mús með litla fætur.
Hér er líka villisvínið.

Hér er stokkönd, sjáðu skeiðönd.
Líka er hér skúfönd, straumönd.
Sjáðu spóa líka starra.
Hér er lítill snjótittlingur.

Sjáðu skötu og skötuselinn.
Og krókódíllinn er hér líka.
Sjáðu ýsu, líka lýsu.
Lýri er hérna, langa - keila.

Hér er ljónið, sebra og api.
Pokadýrið padda og panda.
Hér er hundur, hestur, krummi.
Maríuhænan komd 'og og sjáðu.

Litlir fingur fletta bókum.
Litlir fætur á gólfi tifa.
Bless þið verið blíðu strákar.
Með dökkbrún augu, svarta lokka.

(2000)Ragnar Geir Brynjólfssonhttp://www.blogger.com/profile/07552112415114596269noreply@blogger.com0